Hannað fyrir framtíðina – Ville Kokkonen


17-19

Málþing um nýjungar og stefnur í innanhúshönnun séðar frá sjónarhorni hönnuða og hönnunarkennslu. 

Á málþinginu verður lögð áhersla á sjálfbærar lausnir og framtíðarsýn í hönnun sem auknar lífstílsbreytingar kalla á óðfluga.

Heiðursgestur málþingsins er finnski iðnhönnuðurinn Ville Kokkonen (1975) sem á að baki glæstan feril við hönnun og hefur starfað með leiðandi norrænum vörumerkjum á við Artek, Nokia, Iittala og Ups. Ville starfar sem prófessor í hönnun við Aalto University, School of Arts Design and Architecture í Helsinki.

Interspecies Aalto stool eftirThomas Pausz / mynd eftir Ragnar Visage

Málþingið er skipulagt af Norræna húsinu í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Hönnunarmiðstöð Íslands.

Þátttaka Listaháskóla Íslands er skipulögð af Garðari Eyjólfssyni og Thomas Pausz sem eins og Ville Kokkonen eru hönnuðir og stunda framsæknar kennsluaðferðir. Garðar og Thomas eru fagstjórar meistaranáms í hönnun í Hönnunar- og arkitektúrsdeild Listaháskóla Íslands.

Málþingið fer fram á Ensku.  Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

17: 00-17: 05, Verkefnastjóri Norræna hússins Kristín Ingvarsdóttir ávarpar gesti

17: 05-17: 45, Ville Kokkonen, heiðursgestur; Hannað fyrir framtíðina

17: 45: 17: 50, Garðar Eyjólfsson Dósent við Listaháskóla Íslands: Stutt kynning á sjálfbærni og námi í hönnun í íslensku samhengi.

17: 50-18: 00, Auður Innez Sellgren, vöruhönnuður: „The Icelandic Apple“

18: 00-18: 10, Sigrún Thorlacius: vöruhönnuður: „Healing Earth“.

18: 10-18: 20, Inga Kristín Guðlaugsdóttir: Nemandi í vöruhönnun við IUA „Lupin Project“.

18: 20-18: 35, Thomas Pausz, lektor við Listaháskóla Íslands: „Korpa Project“. A a cluster in the outskirts of Reykjavík dealing with smart farming, bio material and circular economies.

18: 35-19: 00, Panel umræður undir stjórn Höllu Helgadóttur framkvæmdarstjóra Hönnunarmiðstöðvar Íslands.

19: o0-19: 30, Léttar veitingar og spjall

 

 

Málþingið er skipulagt í tengslum við hönnunarsýninguna Innblásið af Aalto: Með sjálfbærni að leiðarljósi sem er  sem er hluti af 50 ára afmælisdagskrá Norræna hússins.

 

 

Viðburðurinn er styrktur af Pennanum Eymundsson.