Hafið – Blár vöxtur í norðri


09:00-12:00

Norðurlönd í fókus, sendiráð Noregs á Íslandi og utanríkisráðuneytið bjóða til málþings í tilefni dags Norðurlandanna þar sem málefni hafsins í norrænu samstarfi eru í brennidepli

Höfin eru órjúfanlegur hluti sögu, menningar, efnahags og umhverfis Norðurlandanna. Norðurlöndin reiða sig á hafið og auðlindir þess sem undirstöðu hagvaxtar, velferðar og vellíðanar, mismikið þó. Sjálfbær nýting og verndun hafsins og auðlinda þess eru forgangsmál bæði í innanríkis- og utanríkispólitík allra Norðurlandanna. Norðurlöndin eru vel meðvituð um að hafið er undir þrýstingi úr mörgum áttum og að þau vandamál verða eingöngu leyst í samvinnu þjóða. Norðurlöndin hafa þannig tekið forystu í málaflokknum alþjóðlega.

Málstofan mun fjalla um hafið í norrænni samvinnu út frá áherslunni um hafið í formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hafið er jafnframt áhersla í formennsku Íslands í Norðurskautsráðinu, í samstarfi utanríkisráðherra Norðurlandanna (N5) og Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna (NB8) og í forsvari Íslands fyrir NB8 hópinn í Alþjóðabankanum.

Formennskuverkefni Íslands í Norrænu ráðherranefndinni eru um hafnir sem nýsköpunarvistkerfi, þ.m.t. orkuskipti, um baráttuna gegn plastmengun í hafinu og um þau tækifæri sem felast í bláa lífhagkerfinu.

Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis aðgangur. 

 

Dagskrá:

09:00 – 09:15 Áhersla Íslands á verndun og sjálfbæra nýtingu hafsins (bláan vöxt)

Auðunn Atlason, sendiherra, Utanríkisráðuneytið

09:15-09:30 Ocean affairs in Norway’s foreign policy (EN)

Hilde Svartdal Lunde, Ambassador of Norway in Iceland

09:30 – 09:45 Hafið og framtíðin

Pétur Halldórsson, Ungir Umhverfissinnar

09:45 – 10:05 Hafnir og nýsköpun

  • Blá nýsköpun – Elís Benediktsson, Norræna nýsköpunarmiðstöðin
  • Orkuskipti í höfnum – Sigríður Ragna, Hafið – Center of Excellence

10:05 – 10:25 Bláa lífhagkerfið

  • Blá lífiðjuver – Bryndís Björnsdóttir, MATÍS
  • 100% fiskur – Þór Sigfússon, Íslenski sjávarklasinn

10:25 – 10:35 Hlé

10:35 – 10:55 Plastmengun og norrænar lausnir

  • Plast í íslenskum höfum – Hrönn Ólína Jörundsdóttir, MATÍS
  • Plastic in the Arctic and MaliNor – Lionel Camus, Fram Centre (EN)

10:55 – 11:15 Loftslagsbreytingar og hafið

  • Loftslagsmál og hafið í utanríkispólitík Íslands – Jón Erlingur Jónasson, utanríkisráðuneytið
  • Hafið og loftslagsbreytingar í stefnu Íslands í loftslagsmálum – Stefán Einarsson, Umhverfisráðuneytið

11:15– 11:55 Pallborð með spurningar & svör (EN)

Guðjón Brjánsson, formaður Íslandsdeildar Vestnorrænaráðsins opnar pallborðið.

Elís Benediktsson, Bryndís Björnsdóttir, Þór Sigfússon, Hrönn Ólína Jörundsdóttir, Lionel Camus, Pétur Halldórsson, e.a. fleiri

 

Fundarstjóri: Geir Oddsson, utanríkisráðuneytið

Í samstarfi formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni, Norðurlöndin í fókus og sendiráðs Noregs í Reykjavík