Sverðin þrjú – Sagnalist fyrir alla fjölskylduna


15:00

 Sverðin þrjú í Norræna húsinu þriðjudaginn 22. Janúar kl. 15:00. 

Fjölskyldusýning með Emily Hennessey. Tungumál: enska. Miðaverð er 1000 kr. Miðar fast við innganginn og í miðasölu hússins á Tix.is.

EMILY HENNESSEY er fádæma góður sögumaður, hugmyndarík, fróð og heillandi. Emily segir goðsögur, þjóðsögur, ævintýri og dæmisögur frá öllum heimshornum. Emily er sænsk af uppruna og með mikla ástríðu fyrir norrænni goðafræði. Emily hefur einstakan frásagnarstíl og með grípandi og skemmtilegri uppbyggingu heldur hún áhorfendum á öllum aldri spenntum fyrir framhaldinu.

Emily hefur sagt sögur í 15 ár og ferðast um allan heim. Nýlega kom hún fram í Delhi á sérstakri hátíð í sagnalist (e. Storytelling Festival). Hún hefur unnið í mörgum þektum leikhúsum, sem dæmi má nefna Royal Opera House, Soho leikhúsinu og Víkingaskipasafninu í Danmörku.

www.emilyhennessey.co.uk

Emily Hennessey er einnig með sýninguna LOKI  þann 24. janúar kl.20:00.