Myndlist í anddyrinu – TRÖLL


Verið velkomin á opnun sýningarinnar TRÖLL eftir listakonurnar Linn Björklund og Völu Björg Hafsteinsdóttur í anddyri Norræna hússins, 26. apríl kl 17:00.

Norræna húsið býður upp á léttar veitingar.

 

Linn Björklund er fædd í Stokkhólmi árið 1985. Hún hefur verið búsett á Íslandi frá árinu 2005 og er með með MA í myndlist frá Listaháskóla Íslands.

Vala Björg Hafsteinsdóttir er fædd árið 1980 í Reykjavík. Hún er með BA í myndlist frá Listaháskóla Íslands og stundar nám í þjóðfræði við Háskóla Íslands.

 

TRÖLL

Áður fyrr hélt fólk að ákveðnar kryddjurtir væru vörn gegn tröllum. Brauð og salt var gjarnan innflutningsgjöf til að varna hungri. Langafi gat stoppað blæðingar með því að fara með þulu. Illt skyldi með illu út kveða. En það heyrir sögunni til að nota galdra gegn því sem vekur ugg og ótta.

En óttinn er enn til staðar, þrátt fyrir allar heimsins tækniframfarir og þekkingu. Kannski er þetta sami ótti, í nýjum búningi. Við hræðumst það sem við skiljum ekki.

Það hlýtur að vera einhver leið til að verjast tröllunum.

 

Sýningin stendur yfir til 13. maí og er aðgangur ókeypis. 

Blönduð tækni: ljósmyndun, teikning og vatnslitun.