Hringferð: Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum


9:30

Hringferð: Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum

Í Norræna húsinu þriðjudaginn 8. mars, klukkan 9.30 –12.00. Viðburðurinn fer fram á íslensku og er aðgangur ókeypis.

Með hvaða hætti fjalla fjölmiðlar um áfengi og önnur vímuefni? Hvernig geta rannsakendur og fjölmiðlafólk bætt samskipti sín í milli og umfjöllun í fjölmiðlum um vímuefni? Hvaða heimildum er treystandi? Þetta er umræðuefni málþings sem Norræna velferðarmiðstöðin, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, stendur fyrir á Íslandi 8. mars 2016.

Málstofan er hluti af hringferð Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar undir yfirskriftinni  „Misnotkun staðreynda? Áfengi og önnur vímuefni í fjölmiðlum“ (Missbruk av Fakta? Alkohol och droger i medierna) sem verður haldin  að þessu sinni  í Reykjavík. Fagfólk fer fyrir yfir góð dæmi og önnur síðri um umfjöllum um áfengi og önnur vímuefni. Sem dæmi má nefna hvernig íslenskir fjölmiðlar fjalla um hvort einkasala ríkisins á áfengi eigi rétt á sér eða ekki. Hvernig getum við forðast slagsíðu í umfjöllun fjölmiðlanna?

Vinsamlegast skráið ykkur á málstofuna 

Drög að dagskrá
9.30 –10.00 Morgunmatur
10.00-10.15 Setning málstofu
Jessica Gustafsson upplýsingafulltrúi, Nordens Välfärdscenter
Fundarstjóri: Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á Mbl.is
10.15 –10.30 Vínbúðin í fjölmiðlum
Rafn Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis
10.30 –11.30 Pallborðsumræður
Fundarstjóri Guðrún Hálfdánardóttir, blaðamaður á Mbl.is
Rafn M Jónsson, Verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna, Embætti landlæknis
Ólöf Skaftadóttir, blaðamaður, Fréttablaðið
Jóna Margrét Ólafsdóttir, Aðjúnkt í félagsráðgjafardeild, Háskóla Íslands

Aðrir þátttakendur tilkynntir síðar.

Skráning: http://www.nordicwelfare.org/Ovrigt/Formular/Island_journalistturnen/

Frekari upplýsingar:
Jessica Gustafsson upplýsingafulltrúi, sími +358 40 060 5752
netfang: jessica.gustafsson(at)nordicwelfare.org