Loki – Sagnalist með Emily Hennessey


20:00

Loki – Sagnalist með Emily Hennessey í Norræna húsinu þriðjudaginn 24. Janúar kl. 20:00. 

Miðaverð er 1000 kr. Miðar fást við innganginn og í miðasölu Norræna hússins með Tix.is

EMILY HENNESSEY er fádæma góður sögumaður, hugmyndarík, fróð og heillandi. Emily segir goðsögur, þjóðsögur, ævintýri og dæmisögur frá öllum heimshornum. Emily er sænsk af uppruna og með mikla ástríðu fyrir norrænni goðafræði. Emily hefur einstakan frásagnarstíl og með grípandi og skemmtilegri uppbyggingu heldur hún áhorfendum á öllum aldri spenntum fyrir framhaldinu.

Emily hefur sagt sögur í 15 ár og ferðast um allan heim. Nýlega kom hún fram í Delhi á sérstakri hátíð í sagnalist (e. Storytelling Festival). Hún hefur unnið í mörgum þektum leikhúsum, sem dæmi má nefna Royal Opera House, Soho leikhúsinu og Víkingaskipasafninu í Danmörku.

Emily verður einnig með fjölskyldusýningu  22. Janúar kl. 15:00. Sýningin er tilvalin sögustund fyrir alla fjölskylduna og samin með börn í huga.

Vefsíða: www.emilyhennessey.co.uk