Kosningar á Grænlandi


12:00 - 13:15

Kosningar á Grænlandi

Opinn fundur á vegum Rannsóknarseturs um norðurslóðir og Norðurlanda í fókus fimmtudaginn 12. apríl frá kl. 12 – 13:15 í Norræna húsinu

Kosningar fara fram á Grænlandi þann 24. apríl. Á þessum opna fundi verður farið yfir stöðu stjórnmála á Grænlandi.

Fundarstjóri: Sigurður Ólafsson verkefnastjóri hjá Norræna húsinu

Dagskrá

Grænland : Áhrif alþjóðastjórnmála á innanlandsmál

  • Damien Degeorges er búsettur í Reykjavík þar sem hann starfar sem ráðgjafi. Hann hefur fylgst náið með þróun mála á Grænlandi í yfir 15 ár. Hann hefur einning skrifað fyrir grænlenska dagblaðið Atuagagdliutit/Grønlandsposten og kennt alþjóðastjórnmál við Háskólann á Grænlandi.

Um hvað snýst kosningabaráttan?

  • Unnur Brá Konráðsdóttir sat á Alþingi 2009 – 2017, fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var kjörin forseti Alþingis 2017 og var formaður íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins 2013 – 2016. Unnur Brá var nýlega ráðin af forsætisráðherra sem aðstoðarmaður ríkisstjórnar og fer með verkefnisstjórn stjórnarskrárendurskoðunar.

Mikilvægi kosninganna og komandi kynslóð

  • Tukumminnguaq Nykjær Olsen er meistaranemi í Vestnorrænum fræðum, Polar law, við Háskólann á Akureyri. Hún er frá Qaanaaq á Grænlandi og er virkur meðlimur í Global Indigenous Youth Caucus hjá Sameinuðu þjóðunum og er fyrrverandi formaður pólitíska nemendafélagsins ILI ILI og sigurvegari í Arctic Innovation Lab, Arctic Circle Assembly á Íslandi 2017.

Umræður á eftir, fara fram á ensku. 

 

Fundurinn fer að mestu fram á ensku