Klassík í vatnsmýrinni “Lifðu í núinu, lifðu í eilífðinni”.


20:00

Þann 21. mars kl. 20.00 flytja þær Helga Rós Indriðadóttir sópran og Guðrún Dalía Salómonsdóttir dagskrá með yfirskriftinni “Lifðu í núinu, lifðu í eilífðinni”.

Á á efnisskránni eru sönglög eftir Victor Ullmann og þau tónskáld sem höfðu mest áhrif á hann, Arnold Schönberg og Alexander von Zemlinsky.

Aðgangseyrir á tónleikana er 2500 kr en 1500 kr fyrir eldri borgara, öryrkja og félagsmenn FÍT – klassískrar deildar FÍH.

Sérstaklega er hvatt til aðsóknar ungs fólks með því að veita tónlistarnemum og öllum 20 ára og yngri ókeypis aðgang að tónleikunum.

Hægt er að kaupa miða við hurð og á TIX. 

Helga Rós Indriðadóttir stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Stuttgart og var um árabil fastráðin við óperuna í Stuttgart. Árið 2014 söng hún hlutverk Elisabettu í uppsetningu Íslensku óperunnar á Don Carlo eftir Verdi.

Guðrún Dalía Salomónsdóttir stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónlistarháskólann í Stuttgart. Hún kemur reglulega fram sem einleikari, tekur þátt í flutningi kammertónlistar og leikur með söngvurum, en samstarf þeirra Helgu Rósar  hófst árið 2008 og ári seinna  gáfu þær út geisladisk með sönglögum Jórunnar Viðar.

 

Viktor Ullmann fæddist í Póllandi en fjölskyldan fluttist til Austurríkis þar sem Ullmann stundaði nám hjá Arnold Schönberg sem kom honum í kynni við Alexander Zemlinsky.  Ullmann var framúrskarandi píanisti en starfaði mest sem hjómsveitarstjóri, lengst af í Prag.  Viktor Ullmann var fluttur til Theresienstadt í september 1942 og  tekinn af lífi í Auschwitz árið 1944. Stóran hluta verka sinna samdi hann í útrýmingarbúðunum, þar á meðal óperuna „Der Kaiser von Atlantis“.

Arnold Schönberg  er talinn eitt áhrifamesta tónskáld 20. aldar. Hann var að miklu leyti sjálfmenntaður en var líkt og Zemlinsky, kennari hans í tónsmíðum, til að byrja með undir rómantískum áhrifum Brahms og Wagner, en umbylti síðar með þróun tólftónatækninnar tónsmíðum hins vestræna heims.

Alexander von Zemlinsky tengdist Schönberg vina og fjölskylduböndum og var í raun eini kennari hans. Zemlinsky átti velgengni að fagna sem hljómsveitarstjóri  auk þess sem hann stundaði tónsmíðar og kennslu. Við upphaf seinna stríðsins flutti hann til bandaríkjanna og starfaði þar til dauðadags 1942.