Hvernig á að búa til skóla úr engu? – Ráðstefna


9:00-11:30

Ráðstefna LungA skólans, Lýðháskólans á Flateyri og UMFÍ: Hvernig á að búa til skóla úr engu?

5 ára reynsla af stofnun og rekstri lýðháskóla á Íslandi og vegurinn framundan

Verið velkomin á ráðstefnu LungA skólans, Lýðháskólans á Flateyri og UMFÍ um lýðháskóla á Íslandi sem haldin verður í Norræna húsinu mánudaginn 23. apríl kl. 9-11.30.

Á ráðstefnunni mun Lisbeth Trinskjær, formaður Dönsku samtakanna um lýðháskóla (Folkehøjskolernes Forening i Danmark), fjalla um þá reynslu sem hlotist hefur af rekstri lýðháskóla á Norðurlöndunum. Rýnt verður í niðurstöður rannsókna sem sýna veruleg áhrif lýðháskóla til minnkunar brottfalls og aukningar í framhaldsmenntun meðal brottfallsnemenda á Norðurlöndumum.

Forsvarsmenn lýðháskóla á Íslandi munu fjalla um stöðu lýðháskóla á Íslandi, mögulegt hlutverk þeirra og þau áhrif sem lýðháskólar gætu haft í íslensku menntakerfi. Reynsla LungA skólans af 5 árum í rekstri og reynsla Lýðháskólans á Flateyri við að stofna skólann og afla honum stuðnings og fjármagns verður til umræðu ásamt því sem fjallað verður um áform UMFÍ um að stofna lýðháskóla á Laugarvatni.

Að lokum munu fyrrum nemendur við lýðháskóla fjalla um reynslu sína af veru við LungA skólann og við lýðháskóla á Norðurlöndum.

Ráðstefnan er liður í vinnu við úttekt og stefnumótun á stöðu lýðháskóla á Íslandi og verður mikilvæg uppspretta umræðu og upplýsinga sem nota má í þeirri vinnu.

Ráðstefnan er opin öllum og velkomið er að dreifa þessu boði sem víðast.

 

Fyrirlesarar og kynningar:

Lisbeth Trinskjær, formaður samtaka danskra lýðháskóla
Jonatan Spejlborg – skólastjóri LungA skólans
Auður Inga Þorsteinsdóttir – Framkvæmdastjóri Ungmennafélags Íslands
Helena Jónsdóttir – Framkvæmdastjóri Lýðháskólans á Flateyri
Fyrrum nemendur við LungA skólann og lýðháskóla á Norðurlöndum.

Viðburðurinn á Facebook