Sissal Kampmann

Höfundakvöld með Sissal Kampmann


19:30

Sissal Kampmann (f. 1974) er ljóðskáld frá Færeyjum og cand.mag. í norrænum bókmenntum. Fyrsta ljóðasafn hennar Ravnar á ljóðleysum flogi – yrkingar úr uppgongdini kom út árið 2011 og hlaut hún verðlaun, kennd við Klaus Rifbjerg, sem besta nýja ljóðskáldið það árið. Sissal hefur gefið út fjögur ljóðasöfn eftir það sem hafa fest hana í sessi sem eina sterkustu rödd færeyskra bókmennta.

Sunnudagsland (Søndagsland) er fimmta ljóðabók hennar. Sögusviðið eru æskuslóðir höfundar. Eftir að hafa búið í 24 ár bæði í Kaupmannahöfn og í Þórshöfn snýr Sissal Kampmann aftur til fæðingarbæjar síns til að dvelja þar í einhvern tíma. Dvölin þar myndar rammann í ljóðasafninu, þar sem titill þess vísar til drepleiðinlegra sunnudaga í kyrrlátu þorpi, jafnframt því að lýsa einnig ástandi ljóðmælandans þar sem honum leiðist, hann upplifir einmanaleika og á í mikilli tilvistarkreppu.

Viðburðurinn byrjar kl. 19.30 og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.  Jórunn Sigurdardóttir, dagskrárgerdarkona á RUV, stýrir umræðu sem fer fram á dönsku. Aðgangur er ókeypis.

Veitingastaðurinn AALTO Bistro í Norræna húsinu hefur opið fyrir matargesti fyrir höfundakvöldin og býður upp á ljúffengan kvöldverð, smárétti og aðrar veitingar úr fyrsta flokks hráefni. Tilvalið að njóta listilegra veitinga áður en andinn er nærður á höfundakvöldinu. Í hléi er síðan hægt að njóta léttra veitinga frá AALTO Bistro.

Verið velkomin!