Heim úr öllum áttum


19:00

Heim úr öllum áttum

Ljóðadagskrá í Norræna Húsinu miðvikudaginn 7. júní kl. 19.00

Íslandsheimsókn frá Rithöfundamiðstöðinni – Författarcentrum Väst – í  Gautaborg: Ljóðskáldin Anna Mattsson, Axîn Welat, Kristín Bjarnadóttir og Louise Halvardsson, allar félagar í skáldahópnum PoPP.  Þemað er heim og heimkynni, út frá því að búa fjarri heimahögum í lengri tíma, þannig að “heima” kann að vera í Kambódíu eða Sýrlandi ef ekki Svíþjóð.

Dagskráin verður á sænsku, kúrdísku, ensku og íslensku, og flytjendur verða einnig skáldin Þórdís Gísladóttir, Anton Helgi Jónsson og Linda Vilhjálmsdóttir sem séð hafa um túlkanir á íslensku.

Allir velkomnir! Aðgangur ókeypis (eða frjáls framlög) og veitingahúsið AALTO Bistro er opið til kl. 21:30.

 

Ljóðahópurinn kemur þrisvar fram á Íslandi:

Listasafn Árnesinga í Hveragerði 3. júní kl. 15.00 (stutt dagskrá á ýmsum tungumálum)

Bókakaffinu Norðurbakka í Hafnarfirði þann 6. júní kl. 20.00

Norræna húsinu 7 júní kl. 19.00