Er hægt að ná samstöðu um næstu skref í stjórnarskrármálinu?


12:00

Er hægt að ná samstöðu um næstu skref í stjórnarskrármálinu?

Hádegisfundur í Norræna húsinu þann 16. September kl. 12.

Fundurinn fer fram á ensku allir velkomnir.

Streymt er frá fundinum. Nánar um streymi Norræna hússins


Sameiginlegur fundur stjórnarandstöðunnar með Dr. Lawrence Lessig.

Dr. Lessing Lawrence Lessig er bandarískur lögfræðingur, heimspekingur og pólitískur aðgerðasinni. Hann er framkvæmdastjóri Siðfræðistofnunar Edmond J. Safra við Harvardháskóla og lagaprófessor við sama skóla.

Dr. Lessig heldur erindi um mikilvægi íslenska stjórnarskrárferlisins sem talið er einstakt á heimsvísu.

 

Að loknu erindi munu þau, Katrín Jakobsdóttir, Valgerður Bjarnadóttir, Birgitta Jónsdóttir og Theodóra Sigurlaug Þorsteinsdóttir taka sæti í pallborði ásamt Dr. Lessing. Í pallborði sitja einnig þau Ragnhildur Helgadóttir, forseti lagadeildar HR og Jón Ólafsson, prófessor í heimspeki.

 Pallborðsumræðum stýrir Katrín Oddsdóttir, héraðsdómslögmaður.