Enginn hittir einhvern- Leiksýning


20:30

Kaupa miða

Enginn hittir einhvern er opnunarsýning í nýju leikrými Norræna Hússins/Black Box. Höfundur verksins er hinn beitti penni Peter Asmussen sem meðal annars skrifaði handritið af kvikmyndinni Breaking the Waves  með Lars von Trier. Þetta er í fyrsta sinn sem leikverk eftir hann er sýnt hérlendis. Asmussen vann hin virtu dönsku Reumert verðlaunin sem leikskáld ársins fyrir Enginn hittir einhvern. Norræna húsið er stoltur samstarfsaðili verksins. Samstarfið er liður í því að kynna og tryggja sýnileika Norræna höfunda fyrir íslenskum almenningi.

Enginn hittir einhvern er kraftmikið, innblásið og afgerandi leikrit sem hrífur áhorfandann með sér í spennandi ferðalag um furður lífsins. Verkið  leiðir áhorfandann inn í samband  tveggja ástríðufullra einstaklinga sem birtast okkur í sextán stuttum senum sem eru allt í senn fyndnar, ögrandi og ljóðrænar.

Peter Asmussen er fæddur árið 1957. Hann býr í Kaupmannahöfn og skrifar fyrir leikhús, kvikmyndir, sjónvarp og útvarp. Asmussen hefur einnig sent frá sér nokkrar skáldsögur og samið óperulíbrettó. Leikstjóri verksins er Simon Boberg sem gjörþekkir Asmussen og hefur leikstýrt mörgum frumuppfærslum á  hans verkum. Einnig koma að verkinu hópur framúrskarandi listamanna frá Noregi, Finnlandi, Danmörku og Íslandi til að skapa verkinu umgjörð.

“Haldi maður bara örlítið uppá leikhús verður maður dreginn á tálar og manni skemmt frábærlega og allar leikhúsóskir manns munu rætast á þessari leiksýningu. Leikritið er aðeins klukkutími að lengd en satt best að segja það besta sem ég hef séð í áraraðir.“
-Lars Wredström, Börsen

AALTO Bistro býður upp á glæsilegan tveggja rétta leikhúsmatseðil að tilefni sýningarinnar, sjá nánar hér.  AALTO Bistro er vinalegur og spennandi veitingastaður í Norræna húsinu sem rekinn er undir dyggri stjórn og listfengi Sveins Kjartanssonar matreiðslumeistara og sjónvarpskokks.

Sýningar:

11. mars Frumsýning- Boðssýning
12. mars kl. 20:30
13. mars kl. 20:30
17. mars kl. 20:30
18. mars kl. 20:30
19. mars kl. 20:30
1. apríl kl. 20:30
2. apríl kl. 20:30
8. apríl kl. 20:30
9. apríl kl. 20:30
15. apríl kl. 20:30
16. apríl kl. 20:30
22. apríl kl. 20:30
23. apríl kl. 20:30

Sýningartími er 75 mínútur – ekkert hlé.

Höfundur: Peter Asmussen
Þýðandi: Jón Atli Jónasson
Leikstjóri. Simon Boberg
Leikarar: María Ellingsen og Björn Ingi Hilmarsson
Hreyfingar: Raisa Foster
Tónlist: Andreas Ljones
Leikmynd. Snorri Freyr Hilmarsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson

 

Vinsamlegast athugið.  Vegna leikmyndarinnar í verkinu verður ekki mögulegt að hleypa gestum inn á sýninguna eftir að hún er byrjuð.

Hjólastólaaðgengi er  í Norræna húsinu og við viljum vekja athygli á því að aðeins er pláss fyrir tvo hjólastóla á hverri sýningu. Vinsamlegast tilkynnið komu ykkar við móttöku Norræna hússins í síma: 5517030 eða á póstfangið: info@nordichouse.is

Vefsíða verksins: www.enginn.is
AALTO Bistro: www.aalto.is
Kaupa miða Miðaverð er 2900 kr. Verð á glæsilegum tveggja rétta kvöldverði á AALTO Bistro fyrir sýningu er 4900 kr. Verð fyrir leikhúsmiða og tveggja rétta máltíð er 7800 kr. Til að bóka borð á AALTO Bistro fyrir sýningu er hægt að hringja í síma 551-0200 eða senda á netfangið aalto@bordstofan.is