Dagur Norðurlandanna


17:15

Dagur Norðurlandanna

Norræna félagið og Norræna húsið bjóða til hátíðardagskrár í Norræna húsinu fimmtudaginn 23. mars kl 17:15 – 18:30 í tilefni af degi Norðurlanda.

Dagskrá: 

Bogi Ágústsson, formaður Norræna félagsins býður gesti velkomna.

Björg Eva Erlendsdóttir, formaður Reykjavíkurdeildar Norræna félagsins, ræðir um samstarf Íslands og Færeyja og segir frá fyrirhuguðu höfuðborgarmóti sem haldið verður í Þórshöfn í Færeyjum seinna á árinu.

Linda Vilhjálmsdóttir les uppúr  ljóðabók sinni „Frelsi“ sem er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Um bókina segir á vef Norrænu ráðherranefndarinnar:  Frelsi er óvenju áleitin og áhrifamikil ljóðabók með nafnlausu inngangsljóði og þremur tölusettum ljóðabálkum sem allir snúast um leiðarminnið frelsi, afbökun okkar á hugtakinu og upplifun okkar af því.

Tónlistaratriði: Ingi Gunnar Jóhannsson flytur lagið „Ens i Nord“ sem nokkrir Vísnavinir á Norðurlöndum ætla að flytja í hverju landi fyrir sig þennan dag.

Inga Dóra Markussen, framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins, segir frá stjórnmálum í Grænlandi og stöðu Grænlands í norrænu og vestnorrænu samstarfi.

Ásdís Eva Hannesdóttir, framkvæmdarstjóri Norræna félagsins, segir frá Eystrarsaltssamstarfi frjálsra félagasamtaka og alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Reykjajanesbæ í maí.

Allir velkomnir!