15:15 Tónleikasyrpan – Leikandi ljóð


15:15

John A. Speight: Sex sönglög – frumflutningur
A. Copland: Fjögur sönglög
D. Argento: Tvö sönglög úr 6 Elizabethan songs
S. Barber: Fjögur sönglög úr Hermit songs op. 29
O. Resphigi: Þrjú sönglög
E. Granados: Þrjú sönglög úr Tonadillas
Flytjendur: Sólrún Bragadóttir, sópran og
Anna Málfríður Sigurðardóttir, píanó

Sólrún Bragadóttir:
Eftir að hafa stundað tónlistarnám bæði í söng og píanóleik lauk Sólrún Bragadóttir meistaragráðu í einsöng og söngkennslu frá tónlistarháskólanum í Bloomington í Indiana. Meðal kennara hennar þar var hin þekkta rúmenska söngkona, Virginia Zeani.
Hún hefur starfað við helstu óperu- og leikhús í Þýskalandi t.d. í Kaiserlautern, Hannover, Düsseldorf, Mannheim, München, Karlsruhe, Kiel, Kassel, Heidelberg og einnig víða annars staðar í Evrópu, USA og Japan, í Belfast, Avignon, Torino, Liége, Bern, Palm Beach, Tsuyama í Japan og víðar. Meðal hlutverka Sólrúnar má nefna Mimi í La Bohème, Liú í Turandot, Suor Angelica í samnefndri óperu, Desdemona í Otello, Gilda í Rigoletto, Margarethe í Faust, Leonore í Fidelíó, Elísabet í Don Carlo, Marie í Seldu Brúðinni, Antoniu í Ævintýrum Hoffmanns, Michaela í Carmen, Greifafrúna í Brúðkaupi Fígarós, Donna Anna í Don Giovanni, Pamínu í Töfraflautunni, Elettra í Idomeneo og Fiordiligi í Così fan tutte.Sólrún hefur oft komið fram sem einsöngvari með hljómsveitum, tekið þátt í óperum, ljóðatónlist, óratoríum og sungið Vínartónlist. Í haust stofnaði hún eigin söngskóla, Allelúja, Sacred Sound Skóli, þar sem raddþjálfunin er unnin útfrá heildrænum nálgunum. Sólrún er komin heim með annan fótinn en býr annars í Umbríu fylki á Ítalíu þar sem hún syngur og kennir.

Anna Málfríður Sigurðardóttir:
er Ísfirðingur að uppruna og hóf tónlistarnám við Tónlistarskóla Ísafjarðar, þar sem Ragnar H. Ragnar var aðal píanókennari hennar.
Framhaldsnám stundaði hún við Guildhall School of Music and Drama, London og útskrifaðist þaðan sem einleikari og kennari árið 1971. Hún stundaði síðan frekara nám í píanóleik hjá prófessor Brigitte Wild til ársins 1974.
Frá 1974 hefur Anna starfað sem píanókennari og píanóleikari, bæði á Íslandi og erlendis, nú síðast við Tónskóla Sigursveins, Reykjavík. Hún hefur einnig verið leiðbeinandi á námskeiðum í píanóleik. Anna Málfríður hefur haldið tónleika víðsvegar, bæði hér heima og erlendis og komið fram sem einleikari, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveitinni í Trier, en hún hefur einnig verið virk í kammermúsík og meðleik, þ.á. meðal haldið ljóðatónleika með Sólrúnu Bragadóttur söngkonu.

Miðaverð er kr. 2000 en kr. 1000 fyrir öryrkja, eldri borgara og nemendur
Miðasala við innganginn