Tónleikar: Flamenco gítarleikarinn Reynir Hauksson


21:00

Flamenco gítarleikarinn Reynir Hauksson kemur fram í Norræna húsinu laugardaginn 2. júní kl. 21:00

Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð hans um Ísland í byrjun sumars. Samtals verða þetta sex tónleikar á jafnmörgum stöðum á Vestur- og Suðvesturlandi.

Reynir býr í Granada, Spáni og starfar þar sem Flamenco gítarleikari.

Það heyrir til tíðinda að Flamenco tónlist sé flutt á Íslandi, svo sjaldgæft er það.
Draumur hans er að kynna og tengja þessa mögnuðu list við Ísland.
Reynir mun flytja þekkt Flamenco verk frá Andalúsíu í bland við eigin tónsmíðar.

Miðasala á midi.is og við hurð. Miðaverð 2000 kr.

Húsið opnar hálftíma fyrir viðburð